föstudagur, desember 15

Eðlisfræðingar með skemmtileg nöfn

Þessi færsla ætti nú að koma e-m í gott skap (það er ef nokkur les þetta blogg lengur).

Ég kynni með stolti:



Vladimir Aleksandrovich Fock

Merkilegt nok þá er ég búinn að kynnast tveimur af mörgum afrekum hans í eðlisfræði...

fimmtudagur, desember 14

Skammtalækningar

Ráð frá skammtalækninum:
  • Ein Clebsch-Gordan tafla á dag kemur öllu í lag
  • sunnudagur, desember 10

    Eins og Geirmundur Valtýs söng

    Nú er ég léttur
    Og orðinn nokkuð Bose-Einstein þéttur
    Lesturinn er rétt að byrja
    Þetta er rosa geim

    laugardagur, desember 9

    Ljóskastara beint ofan í Mímisbrunn

    Krakkar, þetta er ekkert mál.

    Ástandssumman í kórsafninu (ZUSTANDSAMMEL) er náttúrulega ekkert annað en Laplace ummyndunin á ástandaþéttleikanum.

    Borðleggjandi

    föstudagur, desember 8

    Við upphaf prófa

    Þá er nú ekki amalegt að fá sér Magic



    Ennþá skemmtilegra er þó þegar maður laumar vodkadreitli í orkudrykkinn sinn og sýpur yfir bókunum



    Boðskapur: Kaffi - Búið spil
    Vodka og Magic - Málið

    fimmtudagur, desember 7

    miðvikudagur, desember 6

    Ritstíflurnar

    Nú þegar gerð aðrennslisganga Kárahnjúkavirkjunar er nýlokið fæ ég það á tilfinninguna að ritstíflan sem reist var á þessari síðu muni brátt bresta.

    föstudagur, október 27

    Köttur Schrödingers

    Asskoti er gaman að klappa kisa...

    þriðjudagur, maí 9

    Spurningar tvær

    hafa brunnið á mér síðustu vikur.

    1. Man einhver annar en ég eftir sunnudagsjógúrtinni sem átti sitt blómaskeið e-s staðar í kringum 1989 ef mig misminnir ekki?

    2. Afhverju eru almannavarnaflauturnar ekki lengur prófaðar eða er ég farinn að heyra svona illa?

    laugardagur, maí 6

    Þakkir

    Eftirtaldir aðilar fá þakkir ef ég fell á einhverju prófi nú í vor:

    * Kjaftaklúbburinn hjá verkfræðistelpunum í VR-II
    * Krakkarnir við hliðina á mér sem annað hvort djöflast á trampólíni eða djöflast á píanói. Þessu linnir aldrei
    * Krakkarnir í blokkini á móti mér sem eru búin að leyfa mér að njóta æfinga sinna í að dripla körfubolta.

    Takk fyrir.

    mánudagur, apríl 24

    Ráðlagðan dagskammt af þvælu...

    ...má fá af þessari síðu. Hér fyrir neðan má sjá topp 10 lista um ástæður þess að henda örbylgjuofninum:

    1. Að borða sífellt mat hitaðan í örbylgjuofni veldur langtíma- varanlegum heilaskemmdum vegna áhrifa á rafstrauma í heilanum (umpólun eða afseglun á vefjum heilans).
    2. Mannslíkaminn getur ekki efnaskipt (brotið niður) þessi óþekktu aukaefni sem verða til við örbylgjuhitun.
    3. Framleiðsla á karl-og kvenhormónum minnkar og/eða breytist við langtíma neyslu á örbylgjuðum mat.
    4. Áhrif óþekktra aukaefna sem hafna í líkamanum eru varanleg.
    5. Vítamín, steinefni og önnur næringarefni í matvælum minnka eða breytast við örbylgjur, þannig að líkaminn græðir ekkert á fæðunni.
    6. Steinefni í grænmeti breytist í krabbameinsvaldandi sindurefni í örbylgjuofni.
    7. Örbylgjaður matur veldur krabbameinsvexti í maga og þörmum. Þetta gæti skýrt ört fjölgandi ristilkrabbameinstilfella í Bandaríkjunum.
    8. Langtíma neysla matar úr örbylgjuofnum veldur fjölgun krabbameinsfruma í blóði.
    9. Stöðug neysla matar úr örbylgjuofnum veldur röskun á ónæmiskerfi manna í gegnum eitla-og blóðvökvabreytingar.
    10. Neysla matar úr örbylgjuofnum getur valdið minnisleysi, einbeitingarskorti, tilfinningaóróa og greindarskorti.

    Ráðlagðan dagskammt af þvælu...

    ...má fá af þessari síðu. Hér fyrir neðan má sjá topp 10 lista um ástæður þess að henda örbylgjuofninum:

    1. Að borða sífellt mat hitaðan í örbylgjuofni veldur langtíma- varanlegum heilaskemmdum vegna áhrifa á rafstrauma í heilanum (umpólun eða afseglun á vefjum heilans).
    2. Mannslíkaminn getur ekki efnaskipt (brotið niður) þessi óþekktu aukaefni sem verða til við örbylgjuhitun.
    3. Framleiðsla á karl-og kvenhormónum minnkar og/eða breytist við langtíma neyslu á örbylgjuðum mat.
    4. Áhrif óþekktra aukaefna sem hafna í líkamanum eru varanleg.
    5. Vítamín, steinefni og önnur næringarefni í matvælum minnka eða breytast við örbylgjur, þannig að líkaminn græðir ekkert á fæðunni.
    6. Steinefni í grænmeti breytist í krabbameinsvaldandi sindurefni í örbylgjuofni.
    7. Örbylgjaður matur veldur krabbameinsvexti í maga og þörmum. Þetta gæti skýrt ört fjölgandi ristilkrabbameinstilfella í Bandaríkjunum.
    8. Langtíma neysla matar úr örbylgjuofnum veldur fjölgun krabbameinsfruma í blóði.
    9. Stöðug neysla matar úr örbylgjuofnum veldur röskun á ónæmiskerfi manna í gegnum eitla-og blóðvökvabreytingar.
    10. Neysla matar úr örbylgjuofnum getur valdið minnisleysi, einbeitingarskorti, tilfinningaóróa og greindarskorti.

    sunnudagur, apríl 23

    Innblásinn...

    ...af nýlegri færslu á Svára skipa ég öllum lesendum að tékka á seinni hluta disksins Aqualung með Jethro Tull (My God og lögin sem koma á eftir því). Epískt.

    Synd og skömm að svona góð tónlist sé ekki gerð lengur...


    Prófin fara að byrja. Ætli það þýði ekki að fleiri færslur séu væntanlegar á næstunni...

    þriðjudagur, mars 21

    Æska nú til dags, hluti 1

    Síðastliðinn föstudagur var merkilegur fyrir margra hluta sakir. Hann hófst á því að klukkan 3 um morguninn sló undirritaður ásamt verkbókarfélaganum Agli Árni Guðnasyni verkbókarmet sem að því ég best veit hefur ekki enn verið slegið af neinum sem ég þekki.

    Eins og gefur að skilja var svefnstaðan mín því að daðra við kreditið þegar ég fór í skólann daginn eftir og ekki batnaði hún eftir því sem á leið daginn. Þegar ég kom heim var var ég því við svefnsins dyr og litlu munaði að mig þryti örendi og ég legðist upp í rúm áður en kvöldið rynni upp með sín æfintýr. Þó er engu líkara en æðri máttarvöld hafi ekki sætt sig við áætlun mína og sendu því til mín lítinn púka í gervi 10 ára strákræfils. Þegar ég var um það bil að skríða undir mjúka og hlýja sæng mína glumdi í dyrabjöllunni. Forviða vissi ég ekki hvaðan á mig stóð veðrið, átti ég von á gesti á þessum tíma dags? Væri þetta e.t.v. spennandi pakki frá útlöndum eða einhver vinur sem hefði bakað handa mér köku og ákveðið að bjóða sér í kaffi heim til mín?

    Fullur tilhlökkunar stökk ég fram í forstofu, reif í hurðarhúninn og opnaði dyrnar upp á gátt. Við mér blasti strákhnokki, á að giska 10 ára gamall. "Núnú", hugsaði ég með mér, "hér er greinilega á ferð ungur mannvinur sem er líklegast að safna fé til matarkaupa handa soltnum Afríkönum eða þá dóti á tombólu til styrktar Rauða Kross Íslands." Hugur minn hóf að þjóta yfir hvað ég gæti gefið þessum litla hugsjónarmanni en komst ekki langt áður en spurningin gall upp úr litla kvikindinu. "Áttu nokkuð Idol-stjörnur?". Hvílík heimtufrekja, hvílík ósvífni! Hve lágt leggst vor æska er hún bankar uppi hjá ókunnugum í veikri von um að geta sníkt afrifnar Idol-stjörnur af kókflöskum? Hafa þessir gríslingar ekki heyrt um fórnfýsi og hugulsemi til þeirra er minna mega sín, snýst virkilega allt um hver á flestar glansmyndir af Kalla Bjarna og Davíð Smára?

    Fullur vonbrigða vissi ég ekki hvað ég átti til bragðs að taka og greip því til þess sígilda bragðs að veita strákhelvítinu einn velútbúinn vinstri krók á hægra augað. Hann fékk að sjá sínar stjörnur við það...

    [ Vel að merkja var síðasta efnisgreinin uppspuni. Ég sagði einfaldlega nei og skellti hurðina á frekjuna en það var ekki jafnafgerandi endir... ]

    föstudagur, mars 17

    Úthald

    18 samfelld lærdómslota í VR-II sem rétt í þessu var að ljúka.

    Harka...

    miðvikudagur, mars 15

    Haha

    Ivan Motta

    Haha

    laugardagur, febrúar 25

    Plebbar og pakk

    Þessi síða hérna, www.kvennaferdir.is er líklegast sú allra versta sem ég hef séð í langan tíma. Henni væri vorkunn, konunni sem dytti í hug að ferðast með þessari ferðaskrifstofu...

    miðvikudagur, febrúar 22

    Um lífsins gagn og nauðsynjar

    Það er hverjum manni lífsnauðsynlegt að rifja upp kynni sín af Meat Loaf og Leðurblökunni frá Helvíti með reglulegu millibili...

    Gamlar fréttir

    Eru skemmtilegar...

    mánudagur, febrúar 20

    Tvífarar

    Alltaf gaman af tvíförum...



    og