tag:blogger.com,1999:blog-54593632024-03-14T05:30:04.602+00:00Í kaffi með Ásgeiri og Jónasi HallgrímsBara svona nokkrar pælingar frá Kaupmannahöfn

Neoabstraktar tjáningar, skálað í dýrindis cognac og einglyrnin hafin á loft.

Og það skal þá standa að Davíð Oddsson sé slík gunga og drusla, að hann þori ekki að koma hér, og eiga orðastað við mig!Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.comBlogger326125tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-49624361916509693842008-02-04T00:20:00.000+00:002008-02-04T00:23:47.353+00:00FjölmenningAð horfa á Superbowl á þýskri sjónvarpsstöð í Danmörku. Það er býsna skrítið að hlusta á þýska sjónvarpsmenn lýsa amerískum fótbolta, ég væri örugglega ekki að horfa á þessa útsendingu ef seinni heimsstyrjöldin hefði farið á annan veg.Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com3tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-12120925535758378792008-02-02T17:40:00.000+00:002008-02-02T17:41:46.488+00:00Eftir þrjá CarlsbergaBetra er að vera látlaus en lauslátÁsgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com1tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-85720635886643486222007-02-26T04:06:00.000+00:002007-02-26T04:10:21.423+00:00Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1166628173811342182006-12-20T15:22:00.000+00:002006-12-20T15:22:53.826+00:00JæjaEkki laust við að kjeppinn sé hálfnaður á leiðinni að B.S. gráðu...Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1166144627428255022006-12-15T01:00:00.000+00:002006-12-15T01:03:47.440+00:00Eðlisfræðingar með skemmtileg nöfnÞessi færsla ætti nú að koma e-m í gott skap (það er ef nokkur les þetta blogg lengur).

Ég kynni með stolti:

Vladimir Aleksandrovich Fock

Merkilegt nok þá er ég búinn að kynnast tveimur af mörgum afrekum hans í eðlisfræði...Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1166119959943117712006-12-14T18:11:00.000+00:002006-12-14T18:12:39.956+00:00SkammtalækningarRáð frá skammtalækninum:

Ein Clebsch-Gordan tafla á dag kemur öllu í lag
Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1165795118334221682006-12-10T23:55:00.000+00:002006-12-10T23:58:38.346+00:00Eins og Geirmundur Valtýs söngNú er ég léttur
Og orðinn nokkuð Bose-Einstein þéttur
Lesturinn er rétt að byrja
Þetta er rosa geim

Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1165628527551335532006-12-09T01:40:00.000+00:002006-12-09T01:42:07.570+00:00Ljóskastara beint ofan í MímisbrunnKrakkar, þetta er ekkert mál.

Ástandssumman í kórsafninu (ZUSTANDSAMMEL) er náttúrulega ekkert annað en Laplace ummyndunin á ástandaþéttleikanum.

BorðleggjandiÁsgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1165588926703572502006-12-08T14:39:00.000+00:002006-12-08T14:42:06.716+00:00Við upphaf prófaÞá er nú ekki amalegt að fá sér Magic

Ennþá skemmtilegra er þó þegar maður laumar vodkadreitli í orkudrykkinn sinn og sýpur yfir bókunum

Boðskapur: Kaffi - Búið spil
Vodka og Magic - MáliðÁsgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1165452047931872372006-12-07T00:40:00.000+00:002006-12-07T00:40:47.953+00:00Uppáhaldsjólasveinninn minn?Faldafeykir.

Pottþétt

Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1165436269347271642006-12-06T20:16:00.000+00:002006-12-06T20:17:49.360+00:00RitstíflurnarNú þegar gerð aðrennslisganga Kárahnjúkavirkjunar er nýlokið fæ ég það á tilfinninguna að ritstíflan sem reist var á þessari síðu muni brátt bresta.Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1161921864906473302006-10-27T04:03:00.000+00:002006-10-27T04:04:24.920+00:00Köttur SchrödingersAsskoti er gaman að klappa kisa...Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1147135120241641042006-05-09T00:37:00.000+00:002006-05-09T00:38:40.253+00:00Spurningar tværhafa brunnið á mér síðustu vikur.

1. Man einhver annar en ég eftir sunnudagsjógúrtinni sem átti sitt blómaskeið e-s staðar í kringum 1989 ef mig misminnir ekki?

2. Afhverju eru almannavarnaflauturnar ekki lengur prófaðar eða er ég farinn að heyra svona illa?Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1146939778441136122006-05-06T18:14:00.000+00:002006-05-06T18:22:58.493+00:00ÞakkirEftirtaldir aðilar fá þakkir ef ég fell á einhverju prófi nú í vor:

* Kjaftaklúbburinn hjá verkfræðistelpunum í VR-II
* Krakkarnir við hliðina á mér sem annað hvort djöflast á trampólíni eða djöflast á píanói. Þessu linnir aldrei
* Krakkarnir í blokkini á móti mér sem eru búin að leyfa mér að njóta æfinga sinna í að dripla körfubolta.

Takk fyrir.Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1145898033175028352006-04-24T16:32:00.001+00:002006-04-24T17:00:37.210+00:00Ráðlagðan dagskammt af þvælu......má fá af þessari síðu. Hér fyrir neðan má sjá topp 10 lista um ástæður þess að henda örbylgjuofninum:

1. Að borða sífellt mat hitaðan í örbylgjuofni veldur langtíma- varanlegum heilaskemmdum vegna áhrifa á rafstrauma í heilanum (umpólun eða afseglun á vefjum heilans).
2. Mannslíkaminn getur ekki efnaskipt (brotið niður) þessi óþekktu aukaefni sem verða til við örbylgjuhitun.
3. Framleiðsla á karl-og kvenhormónum minnkar og/eða breytist við langtíma neyslu á örbylgjuðum mat.
4. Áhrif óþekktra aukaefna sem hafna í líkamanum eru varanleg.
5. Vítamín, steinefni og önnur næringarefni í matvælum minnka eða breytast við örbylgjur, þannig að líkaminn græðir ekkert á fæðunni.
6. Steinefni í grænmeti breytist í krabbameinsvaldandi sindurefni í örbylgjuofni.
7. Örbylgjaður matur veldur krabbameinsvexti í maga og þörmum. Þetta gæti skýrt ört fjölgandi ristilkrabbameinstilfella í Bandaríkjunum.
8. Langtíma neysla matar úr örbylgjuofnum veldur fjölgun krabbameinsfruma í blóði.
9. Stöðug neysla matar úr örbylgjuofnum veldur röskun á ónæmiskerfi manna í gegnum eitla-og blóðvökvabreytingar.
10. Neysla matar úr örbylgjuofnum getur valdið minnisleysi, einbeitingarskorti, tilfinningaóróa og greindarskorti.Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1145896427688826012006-04-24T16:32:00.000+00:002006-04-24T16:33:51.840+00:00Ráðlagðan dagskammt af þvælu......má fá af þessari síðu. Hér fyrir neðan má sjá topp 10 lista um ástæður þess að henda örbylgjuofninum:

1. Að borða sífellt mat hitaðan í örbylgjuofni veldur langtíma- varanlegum heilaskemmdum vegna áhrifa á rafstrauma í heilanum (umpólun eða afseglun á vefjum heilans).
2. Mannslíkaminn getur ekki efnaskipt (brotið niður) þessi óþekktu aukaefni sem verða til við örbylgjuhitun.
3. Framleiðsla á karl-og kvenhormónum minnkar og/eða breytist við langtíma neyslu á örbylgjuðum mat.
4. Áhrif óþekktra aukaefna sem hafna í líkamanum eru varanleg.
5. Vítamín, steinefni og önnur næringarefni í matvælum minnka eða breytast við örbylgjur, þannig að líkaminn græðir ekkert á fæðunni.
6. Steinefni í grænmeti breytist í krabbameinsvaldandi sindurefni í örbylgjuofni.
7. Örbylgjaður matur veldur krabbameinsvexti í maga og þörmum. Þetta gæti skýrt ört fjölgandi ristilkrabbameinstilfella í Bandaríkjunum.
8. Langtíma neysla matar úr örbylgjuofnum veldur fjölgun krabbameinsfruma í blóði.
9. Stöðug neysla matar úr örbylgjuofnum veldur röskun á ónæmiskerfi manna í gegnum eitla-og blóðvökvabreytingar.
10. Neysla matar úr örbylgjuofnum getur valdið minnisleysi, einbeitingarskorti, tilfinningaóróa og greindarskorti.Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1145828737186042952006-04-23T21:40:00.000+00:002006-04-23T21:45:37.200+00:00Innblásinn......af nýlegri færslu á Svára skipa ég öllum lesendum að tékka á seinni hluta disksins Aqualung með Jethro Tull (My God og lögin sem koma á eftir því). Epískt.

Synd og skömm að svona góð tónlist sé ekki gerð lengur...

Prófin fara að byrja. Ætli það þýði ekki að fleiri færslur séu væntanlegar á næstunni...Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1142986310867264472006-03-21T23:55:00.000+00:002006-03-22T00:11:50.906+00:00Æska nú til dags, hluti 1Síðastliðinn föstudagur var merkilegur fyrir margra hluta sakir. Hann hófst á því að klukkan 3 um morguninn sló undirritaður ásamt verkbókarfélaganum Agli Árni Guðnasyni verkbókarmet sem að því ég best veit hefur ekki enn verið slegið af neinum sem ég þekki.

Eins og gefur að skilja var svefnstaðan mín því að daðra við kreditið þegar ég fór í skólann daginn eftir og ekki batnaði hún eftir því sem á leið daginn. Þegar ég kom heim var var ég því við svefnsins dyr og litlu munaði að mig þryti örendi og ég legðist upp í rúm áður en kvöldið rynni upp með sín æfintýr. Þó er engu líkara en æðri máttarvöld hafi ekki sætt sig við áætlun mína og sendu því til mín lítinn púka í gervi 10 ára strákræfils. Þegar ég var um það bil að skríða undir mjúka og hlýja sæng mína glumdi í dyrabjöllunni. Forviða vissi ég ekki hvaðan á mig stóð veðrið, átti ég von á gesti á þessum tíma dags? Væri þetta e.t.v. spennandi pakki frá útlöndum eða einhver vinur sem hefði bakað handa mér köku og ákveðið að bjóða sér í kaffi heim til mín?

Fullur tilhlökkunar stökk ég fram í forstofu, reif í hurðarhúninn og opnaði dyrnar upp á gátt. Við mér blasti strákhnokki, á að giska 10 ára gamall. "Núnú", hugsaði ég með mér, "hér er greinilega á ferð ungur mannvinur sem er líklegast að safna fé til matarkaupa handa soltnum Afríkönum eða þá dóti á tombólu til styrktar Rauða Kross Íslands." Hugur minn hóf að þjóta yfir hvað ég gæti gefið þessum litla hugsjónarmanni en komst ekki langt áður en spurningin gall upp úr litla kvikindinu. "Áttu nokkuð Idol-stjörnur?". Hvílík heimtufrekja, hvílík ósvífni! Hve lágt leggst vor æska er hún bankar uppi hjá ókunnugum í veikri von um að geta sníkt afrifnar Idol-stjörnur af kókflöskum? Hafa þessir gríslingar ekki heyrt um fórnfýsi og hugulsemi til þeirra er minna mega sín, snýst virkilega allt um hver á flestar glansmyndir af Kalla Bjarna og Davíð Smára?

Fullur vonbrigða vissi ég ekki hvað ég átti til bragðs að taka og greip því til þess sígilda bragðs að veita strákhelvítinu einn velútbúinn vinstri krók á hægra augað. Hann fékk að sjá sínar stjörnur við það...

[ Vel að merkja var síðasta efnisgreinin uppspuni. Ég sagði einfaldlega nei og skellti hurðina á frekjuna en það var ekki jafnafgerandi endir... ]Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1142567549981902672006-03-17T03:51:00.000+00:002006-03-17T03:52:29.996+00:00Úthald18 samfelld lærdómslota í VR-II sem rétt í þessu var að ljúka.

Harka...Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1142450768925827722006-03-15T19:25:00.000+00:002006-03-15T19:26:08.936+00:00HahaIvan Motta

HahaÁsgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1140883333880004352006-02-25T15:59:00.000+00:002006-02-25T16:02:13.890+00:00Plebbar og pakkÞessi síða hérna, www.kvennaferdir.is er líklegast sú allra versta sem ég hef séð í langan tíma. Henni væri vorkunn, konunni sem dytti í hug að ferðast með þessari ferðaskrifstofu...Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1140651632906180012006-02-22T23:39:00.000+00:002006-02-22T23:40:32.916+00:00Um lífsins gagn og nauðsynjarÞað er hverjum manni lífsnauðsynlegt að rifja upp kynni sín af Meat Loaf og Leðurblökunni frá Helvíti með reglulegu millibili...Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1140572987851995032006-02-22T01:49:00.000+00:002006-02-22T01:49:47.866+00:00Gamlar fréttirEru skemmtilegar...Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1140475734923031822006-02-20T22:48:00.000+00:002006-02-20T22:48:54.936+00:00TvífararAlltaf gaman af tvíförum...

og

Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0tag:blogger.com,1999:blog-5459363.post-1138461740059761032006-01-28T15:19:00.000+00:002006-01-28T15:22:20.476+00:00Ónýtur/* Vandamálið við að hafa tvö eða fleiri blogg í gangi er að hætta er á að annað verði vanrækt. Svo hefur því miður verið með hið ágæta Heimsborgarablogg en von er á betri tíð þar. Í fullvissu um að enginn lesi það lengur hef ég því ákveðið að skella síðustu færslu sem ég ritaði þar inn hingað líka, enda nauðsynleg lesning fyrir alla þá sem hingað koma./*

Það er deginum ljósara að undirritaður Heimsborgari þolir ekki lengur menningarskort og almennan plebbaskap í Reykjavík. Liðin er sú tíð að undirritaður gat drukkið tunnur af rauðvíni undir styttum Parísar og kúta af Böðvari á bökkum Vltava. Í gær héldu Heimsborgararnir þrír ásamt skjaldsveini sínum, Guillaume de la Skúnk, á hið svonefnda "djamm" sem er víst aðalskemmtun óupplýsts almúga íslensku þjóðarinnar.

Vægast sagt hafði þessi reynsla djúpstæðari áhrif á mig en ég gat gert mér í hugarlund. Morguninn eftir er ég ætlaði mér að rísa úr rekkju undir ljúfum tónum hins 250 ára afmælisbarns leið mér eins og líkami minn hefði lent í sömu hakkavél og gæsalifrin sem ég gæddi mér á í París í formi patês. Gjörónýtur lá ég í móki undir dúnsæng minni og reyndi að hreinsa huga minn af minningum næturinnar. Er ég nú allur að koma til eftir því sem ég skrifa þetta, enda fátt meira gefandi en að vara viðkvæmar sálir við því að lenda í sömu hremmingum og ég.

Nú hljómar franski þjóðsöngurinn úr næsta herbergi, berst til eyrna minna og veitir mér kraft. Þökk sé honum hefur mér takist að endurreisa stolt mitt og hugi minn reikar nú á ný til Notre Dame og Louvre. Ég er frjáls á nýjan leik.Ásgeirhttp://www.blogger.com/profile/12307460166808516963noreply@blogger.com0